Hér. Og nú. Af hverju að bíða með að skipta? Innleiddu rafvæðinguna í hversdagsaksturinn með lúxus tengiltvinn rafbílnum okkar.
Endurskilgreindu upplifun þína. Þú ert einu skrefi nær tillitssamari samgöngumáta.
73
kmDrægni á rafmagni
455
hö.KRAFTUR
28
g/kmLosun með útblæstri
1,2
l/100 kmEldsneytisnotkun
Þegar raforkan bætist við aksturinn verður úr tengiltvinn rafbíll sem tekur tillit til framtíðar án þess að skerða upplifun dagsins í dag.
Nýr innbyggður 6,4 kW tveggja fasa hleðslubúnaður XC90 Recharge býður upp á hraðari hleðslu, frá 0 í 100 prósent á þremur klukkustundum, sem skilar sér í lengri akstri á rafmagni.*
Með akstri með einu fótstigi og fjórhjóladrifi skilar XC90 Recharge frábærum afköstum með lipurð og gerir aksturinn afslappaðan, öruggan og þróttmikinn.
Tölur yfir drægni, losun koltvísýrings og eldsneytisnotkun byggjast á gögnum WLTP-prófana sem fengin eru við sérstakar prófunaraðstæður fyrir XC90 Recharge T8-tengiltvinn rafbíl. Drægni, losun koltvísýrings og eldsneytisnotkun við raunverulegar aðstæður ráðast af aksturslagi og öðrum ytri þáttum. Tölurnar eru til bráðabirgða, endanleg vottun ökutækis bíður staðfestingar. Skoðaðu ítarlega tæknilýsingu til að kynna þér aðrar aflrásir í boði. * Nota þarf þriggja fasa hleðslubúnað til að geta nýtt styttri hleðslutíma með nýja innbyggða hleðslubúnaðinum. Tölur yfir hleðslutíma eru til bráðabirgða og fengnar úr mati og útreikningum sem Volvo Cars framkvæmdi og því ekki hægt að ábyrgjast þær. Hafðu einnig í huga að hleðslutími kann að vera breytilegur og ræðst af þáttum á borð við hitastig utandyra, hitastig rafhlöðu, hleðslubúnað, ástand rafhlöðu og ástand bíls. Endanleg vottun ökutækis bíður staðfestingar.
Merktu við hvern reit. Inni í XC90 Recharge bíður upplifun með virkum eiginleikum.
XC90 Recharge fylgja Google Map, Google Assistant og Google Play.
Já, Apple CarPlay er staðalbúnaður í XC90 Recharge.*
* Aðeins er hægt að nota Apple CarPlay með iPhone 5 eða nýrri. Apple CarPlay og iPhone eru vörumerki Apple Inc.
Já, fjögurra ára aðgangur að þjónustunni er innifalinn. Að þeim tíma liðnum er hægt að framlengja áskriftina ef þú vilt halda áfram að nota þjónustuna.
Áskriftin gildir í allt að fjögur ár. Ef um nýjan bíl er að ræða hefst áskriftin við afhendingu frá söluaðila. Áskriftin er tengd bílnum og ef hann er seldur færist hún yfir á næsta eiganda/notanda.
Já. Öll gögn eru innifalin fyrstu fjögur árin. Þetta á við um leiðsögn og raddaðstoð, sem og niðurhal og notkun á öðrum forritum (t.d. tónlistarstreymi). Eftir þann tíma er hægt að framlengja þjónustuna með áskrift.
Kynntu þér eignarhald og akstur Volvo tengiltvinn rafbíls.
Langar þig að fræðast meira um tengiltvinn rafbíla og tilboðin okkar?
tengiltvinnbíll
Snjöll hönnun hvert sem litið er. Kynntu þér þennan hugvitssamlega SUV-tengiltvinnbíl í millistærð með innbyggðri Google þjónustu.
tengiltvinnbíll
Snjöll hönnun hvert sem litið er. Kynntu þér þennan hugvitssamlega SUV-tengiltvinnbíl í millistærð með innbyggðri Google þjónustu.
Búnaður sem er sýndur er hugsanlega ekki staðalbúnaður eða í boði með öllum útfærslu- eða aflrásavalkostum.
Google, Google Play og Google Maperu vörumerki Google LLC.